Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 26. mars 2026

Vonskuveður er á stórum hluta landsins og gul og appelsínugul viðvörun í gildi vegna suðaustan storms og ofankomu. Skólahald er takmarkað og fólk var hvatt til þess halda sig heima.

Vegir hafa ýmist verið lokaðir eða á óvissustigi og flugi frestað fram yfir hádegi. Fjöldahjálpastöðvar voru opnaðar í Vogum og í Reykjanesbæ.

Nokkur veiðiskip lóna upp í veðrið út af Reykjanesi, hafa tekið upp veiðarfæri og bíða eftir lægi. Stýrimaðurinn á Guðmundi í Nesi segir það væri kæruleysi fara út á dekk

Verðbólga er 5,4 prósent og heldur áfram aukast milli mánaða. Hagfræðingur Landsbankans telur líklegt frekari stýrivaxtahækkanir séu fram undan.

Ísraelsmenn segjast hafa vegið æðsta yfirmann íranska sjóhersins. Hann er sagður bera ábyrgð á dreifingu djúpsprengja um Hormússund, sem hefur lokað nánast alveg fyrir skipaumferð. Rússar segja af og frá þeir útvegi Írönum árásardróna og aðra hernaðaraðstoð.

70 prósent eru sammála því loftslagsbreytingar séu af mannavöldum í könnun Maskínu fyrir Náttúrverndarsamtök Íslands. Langflestir kjósenda Pírata og Vinstri grænna telja svo en fæstir kjósenda Miðflokksins.

Birt

26. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,