Vonskuveðri er spáð um allt land á morgun og stórhríð suðvestantil. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Faxaflóa og miðhálendinu í morgunsárið. Þegar hefur verið ákveðið að loka vegum í nótt.
Allt bendir til þess að leiðtogi jafnaðarmanna fái umboð til að mynda ríkisstjórn í Danmörku, þrátt fyrir sögulegt tap flokksins í þingkosningum í gær.
Nýjar íbúðir seljast illa og verktakar sitja uppi með fjölda óseldra íbúða á háum vöxtum. Verktakar og bankar þurfa að fara að huga að því hvernig bregðast á við, segir varaseðlabankastjóri.
Móðurfélag Facebook og Instagram hefur verið dæmt í Bandaríkjunum fyrir að blekkja notendur og beina skaðlegu efni að börnum. Forseti Íslands vill að samfélagsmiðlafyrirtæki sæti ábyrgð.
Sjúkrabíll, mokstursbíll og björgunarsveitarjeppi fluttu sjúkling frá Egilsstöðum áleiðis til Akureyrar við mjög erfiðar aðstæður í óveðri aðfaranótt þriðjudags. Leiðangurinn tók átta klukkutíma í blindbyl og engu skyggni.
Vítakeppni þurfti til að skera úr um sigurvegara í öðrum leik úrslitaeinvígisins í íshokkí kvenna í gærkvöld. SR og SA áttust þar við.