Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 22. mars 2026

Barnavernd Garðabæjar hefur til rannsóknar grun um brotið hafi verið gegn barni á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi. Málið kom upp í liðinni viku og foreldrar voru upplýstir um það í morgun.

Írönsk stjórnvöld hóta því mikilvægir innviðir í Mið-Austurlöndum verði fyrir óafturkræfum skemmdum ráðist Bandaríkin á orkuver landsins. Bandaríkjaforseti gaf Írönum tveggja sólahringafrest til opna fyrir skipaumferð um Hormússund, ellegar hefji bandaríkjaher gereyðingu orkuvera landsins.

Maður sem stunginn var með hnífi í miðborg Reykjavíkur í nótt er ekki í lífshættu. Lögregla hafði upp á gerandanum með upptökum úr eftirlitsmyndavélum.

Bæði úkraínski herinn og bandarísk hugveita telja rússar séu hefja vorsókn sína gegn Úkraínu þetta árið. Mikið mannfall hefur verið hjá rússum undanfarna daga.

Þung færð er á vegum landsins eftir hríðarveður síðustu daga. Hringvegurinn er lokaður víða á Austurlandi, en önnur lægð er væntanleg á morgun.

Þingkosningarnar í Danmörku verða æsispennandi samkvæmt nýrri skoðanakönnun danska ríkisútvarpsins. Danir ganga til kosninga á þriðjudag.

Síðasti dagur heimsmeistaramótsins í frjálsíþróttum innanhúss er í dag. Júlía Kristín Jóhannesdóttir hljóp í 60 metra grindahlaupi rétt fyrir fréttir. Klukkan tvö hefst bikarmót í hópfimleikum, það verður í beinni á RÚV.

Birt

22. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,