Formaður utanríkismálanefndar gerir ráð fyrir að síðari umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna að ESB verði eftir sveitarstjórnarkosningar í maí. Þingið hefur þá tvær vikur til að klára málið - eigi atkvæðagreiðslan að geta farið fram 29. ágúst.
Ísraelar segjast hafa drepið yfirmann öryggisráðs Írans. Hann birti í gær ákall til ríkja þar sem múslimar eru í meirihluta um stuðning gegn Bandaríkjunum og Ísrael.
Blóðugir og sárir minkar, sem sumir voru farnir að naga sig inn að beini vegna streitu og kvíða, sjást á myndum sem teknar voru í fyrra á þremur minkabúum af sex sem þá voru starfrækt.
Sjö voru handteknir í nótt fyrir líkamsárás á tvo menn í Reykjavík og verða yfirheyrðir í dag.
Enn er óvissustig vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum með tilheyrandi samgöngutruflunum. Rýma þurfti atvinnuhúsnæði í Skutulsfirði á ný í morgun.
Oddviti Miðflokksins í Múlaþingi er ósáttur við að fá ekki að leiða listann áfram í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann fullyrðir að biblíutilvitnanir sínar á sveitarstjórnarfundum séu ástæðan.
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir Portúgal í undankeppni EM í kvöld.