Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 16. mars 2026

Ríflega fimm hundruð manns þurftu leita skjóls vegna óveðurs og ófærðar í gærkvöld og nótt. Sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum segir samtakamátt hafa skipt sköpum þegar fjöldahjálparstöðvar voru opnaðar á Blönduósi og í Reykjaskóla í Hrútafirði.

Búið er opna alla vegi nema um Dynjandisheiði. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi.

Bretar vinna áætlun með bandamönnum sínum um opnun Hormússunds, milli Persaflóa og Ómanflóa. Bandaríkjaforseti segir það vont fyrir framtíð NATO ef bandalagsþjóðir koma ekki til aðstoðar í Íran.

Stjórnvöld gera ráð fyrir fjölga hjúkrunarrýmum um fimmtán hundruð næstu fjögur árin. Yfir 500 biðu eftir hjúkrunarrými í byrjun árs, en stjórnvöld áætla enginn verði á biðlista í árslok 2029.

Byggingafyrirtæki krefur íslenska ríkið um 850 milljónir í bætur vegna tjóns sem það hafi orðið fyrir við byggingu hjúkrunarheimilis á Höfn í Hornafirði.

Lokamálflutningur í réttarhöldum yfir Mariusi Höiby, syni norsku krónprinsessunnar, hófst í dag. Hann hefur neitað sök í nær öllum ákæruliðum.

Kvikmyndin Hver orrustan á fætur annarri One Battle After Another kom, og sigraði á Óskarsverðlaunahátíðinni í gærkvöld og hlaut sex verðlaun. Syndarar Sinners, sem fékk metfjölda tilnefninga, hlaut fern.

Ísland á þrjá keppendur á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss sem hefst í Póllandi á föstudag.

Birt

16. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,