Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 27. febrúar 2026

500 börn sátu heima í dag því skólahald var fellt niður í Ölduselsskóla í Reykjvaík. Verktaki fjarlægði öryggisgirðingar og innanhússlokanir eftir samningi við hann var sagt upp.

Hækkun matvöruverðs á fyrstu tveimur mánuðum ársins er töluvert meiri en í fyrra. Hagfræðingur hjá ASÍ segir hækkanir frá birgjum aðeins skýra þetta hluta.

Pakistanski herinn gerði í nótt loftárásir á Kabúl, höfuðborg Afganistans. Það er til marks um mikla stigmögnun ráðist á skotmörk í höfuðborg landsins.

Talsverð röskun var á samgöngum vegna veðurs í gær. Fjallvegir hafa víðast hvar verið opnaðir aftur og millilandaflug er á áætlun en enn er þung færð á Fjarðarheiði og Reykjanesbraut.

Bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey tekur í hádeginu afstöðu til tillögu um bjóða ekki aftur fram til bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum eftir átta ár í meirihluta. Framboðsfrestur í prófkjöri Sjálfstæðismanna rennur út síðar í dag.

Flokkur Græningja hreppti þingsæti Verkamannaflokksins í aukakosningum í Bretlandi í gær. Sögulegur ósigur flokksins er martröð fyrir Keir Starmer.

Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segist greina mikinn hug meðal fjölskyldufólks snúa til baka í bæjarfélagið. Til stendur ráða skólastjóra til stýra samreknum leik- og grunnskóla í bænum í haust.

ÍR-ingar tryggðu sér í gærkvöld sæti í bikarúrslitum karla í handbolta þar sem þeir mæta Haukum og Ísland mætir Litáen í Laugardalshöll í kvöld í undankeppni HM karla í körfubolta.

Birt

27. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,