Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins fundar með þingflokki hans í dag.
Fólk er verr varið fyrir loftmengun inni í bílum í umferðinni en undir berum himni, að sögn læknis sem furðar sig á tilmælum um að forðast það að vera úti þegar er mikið svifryk.
Ný samræmd próf í stæðfræði og lesskilningi verða í grunnskólum í mars. Samræmd próf hafa ekki verið lögð fyrir nemendur í fimm ár.
Ástvinir rússneska stjórnarandstæðingsins Navalnys og vestrænir diplómatar komu saman við leiði hans í morgun. Tvö ár eru síðan Navalny lést í fangelsi. Rússnesk stjórnvöld neita enn ásökunum um að hafa drepið hann.
Utanríkisráðherra telur að samskipti Dana og Grænlendinga við Bandaríkin verði jákvæðari í kjölfar öryggisráðstefnunnar í München um helgina.
Í drögum að samgönguáætlun er gert ráð fyrir að framlög til almenningssamgangna á landsbyggð dragist saman. Forstöðumaður hjá Vegagerðinni segir ólíklegt að hægt sé að bæta úr almenningssamgöngum á Vestfjörðum ef fjármagn vanti til að standa undir núverandi kerfi.
Í dag er bolludagur og til siðs að landsmenn belgi sig út af bollum af öllum stærðum og gerðum. Við bregðum okkur í bakarí í fréttatímanum
Skíðamaðurinn Jón Erik Sigurðsson fer senn fyrstur af stað í seinni ferð í svigi á Vetrarólympíuleikunum.