Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 13. febrúar 2026

Það er enginn eiginlegur niðurskurður á Landspítalanum, segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Í raun hafi ekki verið gerð krafa um niðurskurð á spítalanum.

Tugir þjóðarleiðtoga og áhrifamanna víðsvegar úr heiminum eru saman komnir í München í Þýskalandi þar sem árleg öryggisráðstefna hefst í hádeginu.

Dor­rit Moussai­eff segist hafa lítil sem engin samskipti haft við Jeffrey Epstein og kveðst í svörum til Mannlífs undrandi á nöfn þeirra Ólafs Ragnars Grímssonar séu í Epstein-skjölunum.

Lögmaður fólks sem var vistað í Bakkakoti á barnsaldri segir mikið hafi fjölgað í hópi þeirra sem vilja aðstoð við sækja sanngirnisbætur til ríkisins.

Ákvörðun Bandaríkjastjórnar um fólki standi ekki hætta af gróðurhúsalofttegundum hefur víðtæk áhrif um allan heim, segir Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs.

Formaður fjárlaganefndar Alþingis fullyrðir loðnustofninn vanmetinn og misheppnuð haustmæling valdi því loðnukvótinn hundrað þúsund tonnum of lítill. Sviðstjórn hjá Hafró hafnar því og segir útreikningana ranga.

Lokað hefur verið fyrir skilaboðaforritið WhatsApp í Rússlandi og hert Telegram. Þrýst er á fólk nota í staðinn ríkisstyrkt app. Mannréttindasamtök saka stjórnvöld um stafræna kúgun.

Birt

13. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,