Úttekt verður gerð á stöðu fósturbarna hér á landi og aðstæður þeirra sem voru á fósturheimilinu Bakkakoti rannsakaðar sérstaklega. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun. Börnum sem voru í fóstri á Bakkakoti verður boðin bæði sálfræði- og áfallaaðstoð.
Ekki er útilokað að enn meiri loðnukvóti verði gefinn út á þessari vertíð. Hafrannsóknastofnun sendir rannsóknarskip til rannsókna í næstu viku.
Tekjur Icelandair voru aldrei meiri en á síðasta ári og í fyrsta sinn flutti flugfélagið yfir fimm milljónir farþega. Samt var tap á rekstri fyrirtækisins.
Að minnsta kosti einn er látinn í Portúgal og konu er saknað á Spáni eftir flóð af völdum stormsins Leonardo. Þúsundir hafa þurft að yfirgefa heimili sín.
Vetrarveður gengur yfir Danmörku. Skólar eru lokaðir og almenningssamgöngur í lamasessi.
Farþegi í flugvél SAS sem þurfti að nauðhemla eftir að hafa óvart reynt flugtak frá akbraut segist aldrei hafa upplifað neitt því líkt. Vélin var á 200 kílómetra hraða þegar mistökin uppgötvuðust.
Fyrirhuguð bygging smáhýsa í Garði í Suðurnesjabæ hefur valdið úlfúð meðal sumra íbúa. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála er komin í málið.
TikTok er ávanabindandi og skaðlegur samfélagsmiðill að mati framkvæmdastjórnar ESB.
Óvenju hægviðrasamt var á landinu í janúar og snjólétt með eindæmum víða. Ekki hefur mælst minni úrkoma í Reykjavík frá árinu 1936.