Hádegisfréttir

Leyft öllum aldurshópum

Hádegisfréttir 14. júní 2025

Lögreglan var kölluð að Edition-hótelinu við Reykjavíkurhöfn á áttunda tímanum í morgun og hefur unnið að rannsókn á vettvangi síðan þá. Lögreglan hefur ekki viljað staðfesta við fréttastofu hvað gerðist.

Ísrael og Íran halda áfram loftárásum á víxl. Að minnsta kosti þrír hafa verið drepnir í Ísrael og hátt í áttatíu í Íran. Varnarmálaráðherra Ísraels segir að Teheran muni brenna láti Íransher ekki af sínum árásum.

Frumvarp um breytingu á veiðigjöldum var afgreitt úr atvinnuveganefnd Alþingis í morgun við mikla andstöðu þingmanna minnihlutans. Þingfundur stendur yfir á Alþingi.

Björgunarsveitir hafa fundið 279 lík þar sem þota Air India hrapaði á íbúðahverfi í indversku borginni Ahmedabad í fyrradag.

Hugað er að öryggismálum við Brúará eftir að ferðamaður féll í ánna og drukknaði. Ferðamálastjóri segist ekki hrifinn af lokunum og bönnum við náttúruperlur.

Mikilvægt er að foreldrar séu forvitnir um það sem börnin þeirra eru að gera, segir deildarstjóri á barna- og unglingageðdeild Landspítalans. Dæmi eru um að börn myndi vinskap við gervigreind -- með misjöfnum afleiðingum.

Heyskapur er óvenju snemma á ferðinni í ár. Bóndi í Landeyjum kláraði fyrsta slátt sumarsins þremur vikum fyrr en gengur og gerist. Hann segist ekki muna eftir öðru eins.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,