Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 15. september 2026

Rússnesk freigáta skaut blysum í átt danskri herþyrlu í gær. Þyrlan var við eftirlit á alþjóðlegu hafsvæði milli Danmerkur og Þýskalands. Í nótt skutu herdeildir NATO niður dróna í litáískri lofthelgi.

Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna náðu ekki ljúka kjarasamningsviðræðum fyrir daginn í dag eins og stefnt var að. Ríkissáttasemjari kveðst þó bjartsýnn.

Illa gekk finna eldsupptök í Toppstöðinni í Elliðaárdal í gær vegna mikils reyks. Slökkvistarf gekk þó vel og áætlanir um starfsemi í húsinu haldast óbreyttar.

Breiðafjarðarferjan Baldur fer í fjögurra til sex vikna slipp í október. Engar siglingar verða milli Stykkishólms og Brjánslækjar á meðan, en farþegaskipið Ingólfur siglir til Flateyjar.

Þrír starfsmenn á meðferðarheimilinu Vogi eru komnir í veikindaleyfi eftir aðalstjórn SÁÁ lýsti í gær stuðningi við framkvæmdastjórn samtakanna. Á sjöunda tug starfsmanna höfðu áður lýst vantrausti á framkvæmdastjórnina.

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun leggur til hluti þess fjár sem fer í húsnæðisbætur verði nýttur til fjármagna íbúðauppbyggingu. Þetta telur stofnunin geta lækkað leiguverð.

Nemendur við Háskólann í Reykjavík syntu í skólann í morgun. Rektor og aðstoðarrektor skólans fylgdu þeim á kajak. Uppákoman var lokahnykkur góðgerðarviku skólans þar sem rúmlega ein milljón króna safnaðist fyrir Píeta-samtökin.

Birt

15. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,