Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 1. ágúst 2026

Lögregla fer ekki fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn Banderos en hefur farið fram á brottvísun og endurkomubann yfir henni. Samgöngustofa afturkallaði haffærni skipsins og þarf áhöfnin því halda kyrru fyrir um borð þar til annað hefur verið ákveðið.

Ítalir afnámu í gær frjálsa för fólks milli Spánar og Ítalíu á grundvelli Schengen, í kjölfar þess tugir þúsunda fólks frá Marokkó komst yfir til spænsku hjálendunnar Cueta. Spænsk stjórnvöld segja meirihluti fólksins hafi snúið til baka, og gagnrýna hörð viðbrögð Ítala og annarra ríkja í Schengen samstarfinu.

Lögregla og skipuleggjendur láta vel af skemmtunum og útihátíðum eftir nóttina, þó var þyrla kölluð til sækja slasaðan mann í Herjólfsdal.

Yfirdýralæknir segir auðvelt þekkja villta minka frá aliminkunum sem var sleppt úr loðdýrabúinu í Mosfellsdal á fimmtudaginn. Strokuminkarnir séu frekar gæfir og komi nánast þegar kallað er á þá. Fjórtán minkar hafa sést síðan í gær, þar af þrír sem gætu verið úr búinu.

Forseti FIFA er hættur við umdeilda hugmynd sína selja hlut í keppnum FIFA.

Birt

1. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,