Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 15. júní 2026

Samkomulag um endalok átaka í Mið-Austurlöndum verður undirritað á föstudag, sögn stjórnvalda í Bandaríkjunum og Íran. Málefni þeirra verða rædd á fundi G7 ríkjanna sem hefst í Sviss í dag.

Einn var fluttur á sjúkrahús með stungusár og þrír handteknir eftir áflog við úrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd í Reykjanesbæ í nótt.

Fjármálaáætlun og stytting atvinnuleysisbótatímabils eru á meðal mála sem afgreidd verða á Alþingi í dag. Forsætisráðherra sér ekki ástæðu til kalla saman þing í ágúst eins og Sjálfstæðisflokkurinn vill.

Hellaklaustrið, Pechersk Pe-tjersk Lavra Lavra, í Kænugarði í Úkraínu er skemmt eftir árásir Rússa í nótt. Klaustrið er á heimsminjaskrá UNESCO.

Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákonar krónprins í Noregi, var í morgun dæmdur í fjögurra ára fangelsi í Héraðsdómi Óslóar. Verjendur hans ætla áfrýja dómnum. Saksóknari fagnar niðurstöðunni.

Enn er óvíst hvar símkerfið brást þegar fjölskylda í neyð á Skagaströnd reyndi án árangurs sambandi við Neyðarlínuna. Málið er til skoðunar hjá Fjarskiptastofu, Neyðarlínunni og fjarskiptafélögunum.

Knattspyrnudeild Gróttu á Seltjarnarnesi fordæmir hegðun stuðningsmanna Fylkis á leik Fylkis og Gróttu í bikarkeppni karla í fótbolta í fyrradag. Þar höfðu áhorfendur meðal annars uppi kynferðisleg ummæli um unnustu eins leikmanna Gróttu.

Þjóðarhöll ehf. hefur gengið tilboði Íslenskra aðalverktaka og samstarfsfyrirtækja þeirra um hönnun og byggingu þjóðarhallar í Laugardal. Tilboðið hljóðar upp á 16,8 milljarða króna.

Bresk stjórnvöld ætla banna börnum yngri en 16 ára í Bretlandi vera á samfélagsmiðlum. Fulltrúar miðlanna segja bann ýta börnum í dimmari afkima netsins.

Birt

15. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,