Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 12. mars 2026

Síminn hefur gert tilboð í vefmiðla og útvarpsstöðvar Sýnar, þar með talið Vísi og Bylgjuna. Gangi kaupin í gegn verða það ein stærstu viðskipti í íslenskri fjölmiðlasögu.

Formaður Blaðamannafélags Íslands vonar þetta verði jákvæðar breytingar þrátt fyrir óvissu sem þeim fylgi. Síminn öflugur bakhjarl og standi betur en Sýn fjárhagslega. Neikvætt fyrir þjóðina sjónvarpsfréttum verði hætt.

Allt 3,2 milljónir hafa neyðst til yfirgefa heimili sín í Íran og um 800 þúsund í Líbanon. Árásir Ísraelshers á Líbanon stigmagnast og varnarmálaráðherra Ísraels hótar innrás.

Íslensk stjórnvöld taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland tekur beinan þátt í máli fyrir dómstólnum.

Aðalhagfræðingur Landsbankans segir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði geti verið í uppnámi vegna verðbólgu. Auknar líkur séu á forsendur samninganna haldi ekki vegna verðbólgu.

Fjöldi snjóflóða hefur fallið í Súðavíkurhlíð í dag og veginum hefur verið lokað. Þá féllu tvö snjóflóð fyrir ofan Flateyri. Flateyrarvegur er á óvissustigi.

Nýr forseti Chile sór embættiseið í gær. Hann er talinn íhaldssamasti forseti Chile síðustu þrjátíu ár.

Undanúrslit í bikarkeppni kvenna í blaki eru í dag. Ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar mæta til leiks.

Birt

12. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,