Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 29. júlí 2026

Óttast er þúsundir minka hafi sloppið úr Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun. Eigandinn segir brotist hafi verið inn og miklar skemmdir unnar á húsum.

Dýralæknir segir þetta stórslys og hafi alvarleg áhrif á villt fuglalíf og annað lífríki.

Notkun peptíða án samráðs við lækni getur verið lífshættuleg. Mikilvægt er hafa samband við lækni ef fólk lendir í vanda eftir inntöku.

Sauðá í Skagafirði hefur hreinsað sig og lífríki hennar varð ekki fyrir skaða þegar málning barst í hana í gær.

Ekkert er vitað um ferðir fótboltaliðs frá Eþíópíu sem lét sig hverfa eftir hafa tekið í alþjóðlega fótboltamótinu Gothia Cup í Gautaborg í Svíþjóð fyrr í þessum mánuði. Sænska lögrelan hefur lýst eftir hópnum.

Stjórn Alþjóðaknattspyrnusambandsins hyggst selja einkafjárfestum hlut í viðskiptafélagi. Evrópska knattspyrnusambandið telur framtíð fótboltans ógnað og hefur boðað til neyðarfundar.

Birt

29. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,