Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 13. júní 2026

Forsætisráðherra Pakistan segir líkur á friðarsamningur milli Bandaríkjanna og Írans verði undirritaður á næsta sólarhringnum. Ísraelsher hefur drepið minnst fimm í Líbanon í morgun og skipað íbúum tuttugu bæja og þorpa flýja.

Frumvarp um lagareldi verður líkindum ekki afgreitt á þessu þingi. Stefnt er þinglokum í næstu viku. Stjórnarandstaðan vill þing komi saman á í ágúst í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við ESB.

Formaður Samtaka atvinnulífsins segir óraunhæft leysa verðbólguna með því fyriræki landsins lækki eða frysti verð líkt og félagsmálaráðherra lagði til í gær. Hann kallar þess í stað eftir samhentu átaki.

Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir dyraverði sem starfi á skemmtistöðum án starfsleyfis oft vinna fyrir stór fyrirtæki. Lögregla lokaði þremur skemmtistöðum í nótt.

Tvö gervigreindarlíkön fyrirtækisins Anthropic hafa verið tekin úr notkun eftir bandarísk stjórnvöld sögðu þau ógnuðu þjóðaröryggi.

Kuðungurinn fjörudoppa hefur fundist lifandi á Íslandi í fyrsta sinn. Eina fjörudoppan sem hafði fundist hér fram því var yfir milljón ára gömul.

Stærðarinnar góðgerðargolfmót stendur yfir í Mosfellsbæ. Þar er safnað fyrir sumarbúðirnar Reykjadal. Við lítum við á mótinu í fréttatímanum.

Jón Þór Hauksson er tekinn við sem nýr þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta. Knattspyrnudeild Stjörnunnar og Jökull Elísabetarson komust samkomilagi um starfslok Jökuls í gær.

Birt

13. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,