Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 4. júní 2026

Forseti Líbanons segir mikið undir í viðræðum um vopnahlé; í samkomulagi sem gert var í gær felist síðasta tækfærið til koma á á varanlegum friði. Þrátt fyrir samkomulagið gera Ísraelsher og Hezbollah enn árásir.

Grindvíkingur sem er daglega í Grindavík er ósáttur við Þórkatla ætli takmarka gistingar í bænum við við ákveðinn dagafjölda í haust.

Dómsmálaráðherra finnst fáránlegt Rússar geti komið til Evrópu í frí. Hún er meðal ráðherra ellefu Evrópuríkja sem hvetja ESB til herða reglur um vegabréfsáritanir til Rússa.

Nokkur styr hefur staðið um ráðningu nýs bæjarstjóra á Akureyri. Fráfarandi bæjarstjóri hefði viljað halda áfram. Oddviti sjálfstæðismanna tók við sem bæjarstjóri á mánudaginn, fyrst kjörinna fulltrúa í 16 ár

Forsætisráðherra telur sjónarmið Íslands um áframhaldandi undanþágu frá ETS-kerfinu í flugi hafa fengið góðan hljómgrunn í Brussel.

Þótt skjálftavirkni hafi verið í meira lagi víða um land síðustu daga er óvíst hvort hrinurnar tengjast.

Verkefnastjóri Vaðölduvers segir framkvæmdir á svæðinu á áætlun. Tvær vindmyllur hafa verið reistar.

Yfirlýsingar utanríkisráðherra Bandaríkjanna um Grænland tilheyri Danmörku „í bili“, breyta engu mati utanríkisráðherra Grænlands. Grænlendingar ráði framtíð lands síns.

Landsliðskonur Íslands í fótbolta segjast átta sig á því leikur við Úkraínu er meira en bara fótbolti fyrir andstæðingana.

Birt

4. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,