Forseti Líbanons segir mikið undir í viðræðum um vopnahlé; í samkomulagi sem gert var í gær felist síðasta tækfærið til að koma á á varanlegum friði. Þrátt fyrir samkomulagið gera Ísraelsher og Hezbollah enn árásir.
Grindvíkingur sem er daglega í Grindavík er ósáttur við að Þórkatla ætli að takmarka gistingar í bænum við við ákveðinn dagafjölda í haust.
Dómsmálaráðherra finnst fáránlegt að Rússar geti komið til Evrópu í frí. Hún er meðal ráðherra ellefu Evrópuríkja sem hvetja ESB til að herða reglur um vegabréfsáritanir til Rússa.
Nokkur styr hefur staðið um ráðningu nýs bæjarstjóra á Akureyri. Fráfarandi bæjarstjóri hefði viljað halda áfram. Oddviti sjálfstæðismanna tók við sem bæjarstjóri á mánudaginn, fyrst kjörinna fulltrúa í 16 ár
Forsætisráðherra telur sjónarmið Íslands um áframhaldandi undanþágu frá ETS-kerfinu í flugi hafa fengið góðan hljómgrunn í Brussel.
Þótt skjálftavirkni hafi verið í meira lagi víða um land síðustu daga er óvíst hvort hrinurnar tengjast.
Verkefnastjóri Vaðölduvers segir framkvæmdir á svæðinu á áætlun. Tvær vindmyllur hafa verið reistar.
Yfirlýsingar utanríkisráðherra Bandaríkjanna um að Grænland tilheyri Danmörku „í bili“, breyta engu að mati utanríkisráðherra Grænlands. Grænlendingar ráði framtíð lands síns.
Landsliðskonur Íslands í fótbolta segjast átta sig á því að leikur við Úkraínu er meira en bara fótbolti fyrir andstæðingana.