Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 22. apríl 2026

Embætti ríkislögreglustjóra hafði ekki burði til sjá um gerð varnargarða á Reykjanesskaga. Varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir skýra þurfi hver ber ábyrgð á viðbragði við náttúruhamförum.

Íranar hafa hertekið tvö flutningaskip á Hormússundi og skotið á það þriðja. Bandaríkjaforseti framlengdi vopnahlé við Íran í gærkvöld en ekki liggur fyrir hvenær friðarviðræður hefjast.

Íbúðum á sölu hefur fjölgað um rúmlega 1.800 undanfarið ár. Offramboð er á vissum tegundum íbúða. Þær eru dýrar og stórar og í fjölbýlishúsum sem fólk virðist ekki vilja búa í.

Nærri 200 björgunarsveitarmenn leituðu erlendum ferðamanni í Þjórsardal fram í myrkur í gærkvöld. Leit heldur áfram í dag.

Forstöðumaður hjá Veitum segir verndun vatnsbóla helsta umhugsunarefni stofnunarinnar í kjölfar skýrslu Veðurstofunnar um hraunavá. Vatnsból Hafnfirðinga og Hvergerðinga eru á efsta hættustigi.

Ungverjar hafa látið af andstöðu við risalán Evrópusambandsins til Úkraínu, eftir olía byrjaði renna í morgun um leiðslu sem liggur frá Rússlandi, um Úkraínu, til Ungverjalands og Slóvakíu.

20 skólum var lokað í Borlänge í Svíþjóð í morgun vegna hótana um skotárás. Maður var handtekinn vegna hótananna og hættu afstýrt.

Birt

22. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,