Embætti ríkislögreglustjóra hafði ekki burði til að sjá um gerð varnargarða á Reykjanesskaga. Varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir að skýra þurfi hver ber ábyrgð á viðbragði við náttúruhamförum.
Íranar hafa hertekið tvö flutningaskip á Hormússundi og skotið á það þriðja. Bandaríkjaforseti framlengdi vopnahlé við Íran í gærkvöld en ekki liggur fyrir hvenær friðarviðræður hefjast.
Íbúðum á sölu hefur fjölgað um rúmlega 1.800 undanfarið ár. Offramboð er á vissum tegundum íbúða. Þær eru dýrar og stórar og í fjölbýlishúsum sem fólk virðist ekki vilja búa í.
Nærri 200 björgunarsveitarmenn leituðu að erlendum ferðamanni í Þjórsardal fram í myrkur í gærkvöld. Leit heldur áfram í dag.
Forstöðumaður hjá Veitum segir að verndun vatnsbóla sé helsta umhugsunarefni stofnunarinnar í kjölfar skýrslu Veðurstofunnar um hraunavá. Vatnsból Hafnfirðinga og Hvergerðinga eru á efsta hættustigi.
Ungverjar hafa látið af andstöðu við risalán Evrópusambandsins til Úkraínu, eftir að olía byrjaði að renna í morgun um leiðslu sem liggur frá Rússlandi, um Úkraínu, til Ungverjalands og Slóvakíu.
20 skólum var lokað í Borlänge í Svíþjóð í morgun vegna hótana um skotárás. Maður var handtekinn vegna hótananna og hættu afstýrt.