Búist er við hitafundi á Alþingi í dag þegar umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild að ESB hefst. Líklegt er að umræðan klárist á morgun.
Ísraelsher hefur hafið umfangsmiklar loftárásir á Íran á ný. Íranar skutu eldflaugum að Ísrael í nótt og gerðu árásir í morgun, þær fyrstu eftir að nýr æðstiklerkur var valinn. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna segja 83 börn hafa verið drepin í loftárásum Ísraela á Líbanon.
G7-ríkin - helstu iðnríki heims - ræða í dag hvort nýta eigi neyðarbirgðir olíu vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs. Evrópusambandið segir að olíuskortur sé ekki yfirvofandi í heimsálfunni þar sem aðildarríki búi að 90 daga neyðarbirgðum.
Fjörutíu og einn Íslendingur hefur yfirgefið átakasvæði í Miðausturlöndum með skipulögðu björgunarflugi með aðstoð borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins og Almannavarna.
Verktakar hófu í morgun að rífa íbúðahús sem eyðilögðust í jarðhræringunum í Grindavík.
Netverslanir og smáframleiðendur á landsbyggðinni vilja aukna samkeppni í póstflutningum. Dropp skoðar að fjölga móttökustöðvum. Hægt er að senda vörur frá þremur stöðum á Norðurlandi.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar tvo æfingaleiki við Svíþjóð í næstu viku. Arna Sigríður Albertsdóttir, eini íslenski keppandinn á Vetrarólympíumóti fatlaðra, keppir í sprettgöngu á morgun.