Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 9. mars 2026

Búist er við hitafundi á Alþingi í dag þegar umræða um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild ESB hefst. Líklegt er umræðan klárist á morgun.

Ísraelsher hefur hafið umfangsmiklar loftárásir á Íran á ný. Íranar skutu eldflaugum Ísrael í nótt og gerðu árásir í morgun, þær fyrstu eftir nýr æðstiklerkur var valinn. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna segja 83 börn hafa verið drepin í loftárásum Ísraela á Líbanon.

G7-ríkin - helstu iðnríki heims - ræða í dag hvort nýta eigi neyðarbirgðir olíu vegna hækkandi heimsmarkaðsverðs. Evrópusambandið segir olíuskortur ekki yfirvofandi í heimsálfunni þar sem aðildarríki búi 90 daga neyðarbirgðum.

Fjörutíu og einn Íslendingur hefur yfirgefið átakasvæði í Miðausturlöndum með skipulögðu björgunarflugi með aðstoð borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins og Almannavarna.

Verktakar hófu í morgun rífa íbúðahús sem eyðilögðust í jarðhræringunum í Grindavík.

Netverslanir og smáframleiðendur á landsbyggðinni vilja aukna samkeppni í póstflutningum. Dropp skoðar fjölga móttökustöðvum. Hægt er senda vörur frá þremur stöðum á Norðurlandi.

Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar tvo æfingaleiki við Svíþjóð í næstu viku. Arna Sigríður Albertsdóttir, eini íslenski keppandinn á Vetrarólympíumóti fatlaðra, keppir í sprettgöngu á morgun.

Birt

9. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,