Mikið hugrekki þarf til að stíga fram og segja frá ofbeldi - þriðjungur þeirra sem eru beittir ofbeldi í æsku segja ekki frá fyrr en eftir mörg ár, segir prófessor í sálfræði. Frásagnir úr Bakkakoti séu hræðileg birtingarmynd ofbeldis.
Febrúarmælingu Hafrannsóknastofnunar á loðnu er lokið og ekki fannst stór vestanganga. Kenningar um hana gáfu von um aðra kvótaaukningu en ekkert verður af því.
Smárúta hafnaði utan vegar í illviðri á Suðurlandi í morgun. Þar snjóar, gul viðvörun er í gildi og hringvegurinn lokaður austan Kirkjubæjarklausturs.
Stjórnvöld ætla að auðvelda hjúkrunarheimilum að fjölga rýmum með því að rýmka framkvæmdaheimildir. Um 700 bíða eftir hjúkrunarrými.
Fulltrúar Úkraínu og Rússlands segja tveggja daga friðarviðræður, sem lauk í Sviss í dag, hafa verið erfiðar. Enn sé langt á milli í átt að samkomulagi.
Eignarhaldsfélög og markaðsfyrirtæki í eigu lektora í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst fengu rúmlega 295 milljónir króna í verktakagreiðslur frá skólanum á um ellefu árum. Slíkar verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna skólans voru bannaðar í fyrra.
Hvorki Elínu Elmarsdóttur Van Pelt né Sonju Lí Kristinsdóttur tókst að klára fyrri ferð sína í svigi á Vetrarólympíuleikunum í morgun. Þær voru ræstar seint og brautin var orðin erfið.