Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 18. febrúar 2026

Mikið hugrekki þarf til stíga fram og segja frá ofbeldi - þriðjungur þeirra sem eru beittir ofbeldi í æsku segja ekki frá fyrr en eftir mörg ár, segir prófessor í sálfræði. Frásagnir úr Bakkakoti séu hræðileg birtingarmynd ofbeldis.

Febrúarmælingu Hafrannsóknastofnunar á loðnu er lokið og ekki fannst stór vestanganga. Kenningar um hana gáfu von um aðra kvótaaukningu en ekkert verður af því.

Smárúta hafnaði utan vegar í illviðri á Suðurlandi í morgun. Þar snjóar, gul viðvörun er í gildi og hringvegurinn lokaður austan Kirkjubæjarklausturs.

Stjórnvöld ætla auðvelda hjúkrunarheimilum fjölga rýmum með því rýmka framkvæmdaheimildir. Um 700 bíða eftir hjúkrunarrými.

Fulltrúar Úkraínu og Rússlands segja tveggja daga friðarviðræður, sem lauk í Sviss í dag, hafa verið erfiðar. Enn langt á milli í átt samkomulagi.

Eignarhaldsfélög og markaðsfyrirtæki í eigu lektora í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst fengu rúmlega 295 milljónir króna í verktakagreiðslur frá skólanum á um ellefu árum. Slíkar verktakagreiðslur til fastráðinna starfsmanna skólans voru bannaðar í fyrra.

Hvorki Elínu Elmarsdóttur Van Pelt Sonju Kristinsdóttur tókst klára fyrri ferð sína í svigi á Vetrarólympíuleikunum í morgun. Þær voru ræstar seint og brautin var orðin erfið.

Birt

18. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,