Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 26. janúar 2026

Kona er þungt haldin eftir eldur kviknaði í íbúð hennar í Reykjanesbæ í gær. Sjö hvolpar drápust í brunanum.

Komið er vatnaskilum í Minneapolis vegna aðgerða ICE - innflytjendastofnunar Bandaríkjanna, segir ríkisstjóri Minnesota. Bandaríkjaforseti kennir Demókrötum um dauða manns sem var skotinn af liðsmönnum ICE.

Greinileg hrygningarganga fannst í loðnuleiðangri fimm skipa. Hafrannsóknastofnun upplýsir síðar í vikunni hvort aukið verði við loðnukvótann.

Bjarni Benediktsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins er nýr framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Einar Þorsteinsson verður áfram oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík. Óvíst er hvort Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri taki 2. sætið á lista Samfylkingarinnar. Miðflokkurinn kynnir einn frambjóðanda á dag og endar á oddvitanum.

Sveitarstjóri í Hornafirði telur uppbyggingu smáhýsa við Skaftafell standast lög. Sveitarfélagið hefur skilað formlegu svari til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur eftir sigur á Svíum í gær, örlögin í sínum höndum og þarf ekki treysta á úrslit í leikjum annarra liða til komast í undanúrslit. Næsti leikur er gegn Sviss á morgun.

Frumflutt

26. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,