Bandaríkin og Danmörk eru sögð ætla að endurskoða samning um varnir Grænlands, eftir að framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins náði lendingu í deilunni við Bandaríkjaforseta í gær. Framkvæmdastjórinn hefur ekki umboð að semja fyrir Dani, segir forsætisráðherra Danmerkur.
Utanríkisráðherra segir létti að aðeins hafi dregið úr spennu vegna Grænlands í gær.
Öllum starfsmönnum Vélfags hefur verið sleppt úr haldi. Fimm voru handteknir í gær vegna rannsóknar héraðssaksóknara sem gerði húsleit á sjö stöðum.
Árásir Rússa á borgaraleg skotmörk í Úkraínu eru stríðsglæpir, segir sendiherra Íslands.
Um tuttugu þúsund símtæki ná ekki sambandi við Neyðarlínuna þegar búið er að slökkva á 2g og 3g sendum símafyrirtækjanna. Símafyrirtækin hafa sett upp símanúmer þar sem viðskiptavinir geta prófað hvort þeirra tæki nái sambandi.
Mikil hætta er á að klæðing á þjóðvegi eitt brotni undan þunga vegna hláku og bleytu. Flutningabílstjórar sem aka suðurleiðina á milli Reykjavíkur og Austfjarða mega ekki fulllesta bíla.
Ísland mætir króatíska liðinu á morgun í fyrsta leik milliriðils á Evrópumóts karla í handbolta. Dagur Sigurðsson þjálfari Króata segir sína menn milli steins og sleggju.