Fjöldi fólks situr fastur eftir að önnur hæð verslunarmiðstöðvar hrundi í jarðskjálfta í Japan í dag. Stjórnvöld segja minnst 50 hafa slasast.
Dómur í manndrápsmáli, sem er kennt við Edition-hótelið, verður kveðinn upp í héraðsdómi í dag. Franskri konu er gefið að sök að hafa banað dóttur sinni.
Snyrtivöruframleiðandinn Johnson og Johnson hefur samþykkt að greiða um sjö hundruð milljarða króna í bætur vegna þess að barnapúðrið þeirra var krabbameinsvaldandi.
Fjórtán ofanflóðavarnarkeilur hafa risið ofan Neskaupstaðar og til stendur að byggja sex til viðbótar, auk þvergarða til að vernda byggðina frá snjóflóðum.
Tilboð í knatthús á Ólafsfirði reyndust allt að tvöfalt hærri en áætlað var og var þeim því hafnað. Formaður bæjarráðs segir verkefnið enn á áætlun.
Franska lögreglan hefur endurheimt tvöþúsund og fimm hundruð ára gamalt hálsmen úr skíragulli sem var stolið í síðustu viku.
Zinedine Zidane er nýr landsliðsþjálfari Frakklands. Tíðindin hafa legið í loftinu um nokkra hríð og voru staðfest í dag.