Á fjórða hundrað þúsund hafa þurft að yfirgefa heimili sín í Frakklandi og á Spáni þar sem miklir skógareldar geisa enn. Ríkisstjórn Frakklands er á neyðarfundi vegna eldanna.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla, um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið, hófst hjá sýslumanni í morgun. Þrjátíu og þrír dagar eru til kjördags.
Banaslys varð á Þrengslavegi í Ölfusi í gærkvöld. Einn lést í slysinu og annar slasaðist.
Hernaðarsagnfræðingur segir hætt við að Íranar hefji aftur árásir á olíuinnviði við Persaflóa haldi árásir Bandaríkjamanna áfram. Þróun olíuverðs ráðist af næsta skrefi Bandaríkjaforseta. Nóttin var sú þriðja í röð án árása.
Héraðssaksóknari sættir sig ekki við frávísun í manndrápsmáli gegn Skúla Tómasi Gunnlaugssyni lækni. Hann hefur kært úrskurðinn til Landsréttar.
Það stefnir í einn besta dag sumarsins í höfuðborginni. Spáð er átján stiga hita í Reykjavík síðdegis.
Stjarnan færist nær fallsæti í Bestu deild karla í fótbolta. FH-ingar eru enn í fallsæti þótt þeir hafi ekki tapað í sjö leikjum í röð.