Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 21. júlí 2026

Andy Burnham, sem tók við sem forsætisráðherra Bretlands í gær, ætlar afnema virðisaukaskatt á rafmagn til létta undir með heimilum í landinu. Þetta er fyrsta stóra aðgerðin sem hann boðar í embætti.

Fyrrverandi þingmaður sem verið hefur í Úkraínu undanförnu telur stríðslok ekki í sjónmáli. Þvert á móti telur hann átökin eigi eftir stigmagnast.

endurskoðuð heildarlög um barnavernd eru liður í framkvæmd samkomulags ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda. Frumvarpsdrög eru í samráðsgátt.

Bandaríkjaforseti hefur sett 50% tolla á fjölda kanadískra vara til hefna fyrir það sem hann kallar ósanngjarna tolla á bandarískar vörur eins og bíla áfengi og mjólkurvörur.

Bæjarstjóri sem lét af störfum vegna langvarandi covid kallar eftir auknum stuðningi við sjúklingahópinn

Samherji hefur stofnað átakssjóð gegn fíknivanda og hyggst leggja honum til 100 milljónir króna á næstu þremur árum. Fyrirtækið skorar á önnur fyrirtæki og einstaklinga taka þátt, með það markmiði safna alls 300 milljónum króna sem nýttar verði til þriggja verkefna.

Tvö lið úr næstefstu deild mætast í Árbæ í kvöld í seinni leik undanúrslita Mjólkurbikars karla í fótbolta. Sigurvegarinn mætir Breiðabliki í úrslitaleik á Laugardalsvelli.

Birt

21. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,