Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 20. júlí 2026

Andy Burnham tók við embætti forsætisráðherra Bretlands í morgun. Forveri hans sagðist ljúka störfum sáttur og með bros á vör.

Áform Orkusölunnar um tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Fljótsdalshéraði eru umdeild. Fulltrúar í sveitarstjórn gagnrýna skort á samráði.

Evrópusambandið sektar kínversku netverslunina Ali Express um nær áttatíu milljarða króna fyrir gera ekki nóg til stöðva sölu á hættulegum og ólöglegum vörum.

Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa farið í nær helmingi fleiri útköll það sem af er júlí en á sama tíma í fyrra.

Enginn umsækjandi um starf sveitarstjóra í Langanesbyggð uppfyllti hæfniskröfur. Byggðaráð ætlar taka sinn tíma til finna rétta manneskju í starfið.

Tveir menn voru handteknir fyrir alvarlega líkamsárás í gærkvöld. Einn var handtekinn fyrir vopnaburð og fíkniefnalagabrot. hafði útbúið handfang á steypustyrktarjárn.

Judith Polgar, stórmeistari í skák, gæti orðið næsti forseti Ungverjalands. Hún keppti um tíma fyrir Taflfélag Reykjavíkur.

Lúsmý setur mark sitt á sumarfrí landsmanna skordýrafælur eru víða uppseldar, kláðabani og viftur rjúka út og fólk virðist bitið meira en oft áður.

Birt

20. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,