Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins leggur til að undanþága Íslands fyrir losunarheimildir í flugi verði framlengd um þrjú ár. Utanríkisráðherra segir að áfram þurfi að vinna að varanlegri lausn.
Andy Burnham tók við sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins í dag. Sextán ár eru síðan hann bauð sig fyrst fram.
Matvælastofnun segir að verklagi hafi verið fylgt þegar rúmar þrjátíu mínútur tók að drepa langreyði í upphafi veiðitímabilsins. Skipverjar hafi gert það sem í þeirra valdi stóð til að lina þjáningar dýrsins.
Tveir brasilískir kafarar eru meðal þeirra níu sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um smygl á 106 kílóum af kókaíni með súrálsskipi.
Fyrrverandi formaður Kennarasambandsins segir áherslur menntamálaráðherra handahófskenndar. Nú eigi að ráðast í átak í stærðfræðinámsgögnum í kjölfar einnar könnunar.
Bandaríkjamenn og Íranar takast enn á um Hormússund. Sjö voru drepnir í árásum Bandaríkjahers á suðurhluta Írans í dag.
Talið er að minnst tólf þúsund umframdauðsföll í níu Evrópulöndum megi rekja til hitabylgjunnar í júní.
Banvænar buxur hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Buxurnar hafa skapað mikla umræðu vegna þess að fólk dettur gjarnan á hausinn þegar það klæðist þeim.