Fósturforeldrar hafa lengi gagngrýnt skort á eftirliti og stuðningi, segir formaður félags þeirra. Úttekt Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðaþjónustu afhjúpi mörg tækifæri til úrbóta.
Forseti Bandaríkjanna hótar að sprengja brýr og orkuver í Íran og Íranar hóta að stöðva allan orkuútflutning frá Miðausturlöndum. Ekkert lát er á árásum á báða bóga.
Líkur á að hiti fari yfir þrjátíu stig austanlands, og hitamet falli, hafa minnkað heldur með morgninum. Heitast var á Seyðisfirði og Borgarfirði eystra í morgun, tæp 28 stig.
Íslensk stjórnvöld skoða að setja skilyrði um að úkraínskir flóttamenn hafi lokið til að fá dvalarleyfi. Evropusambandið kynnti samskonar skilyrði í morgun.
Vinnueftirlitið fer fram með offorsi þegar það stöðvar kínverskar vinnuvélar í tollinum, segir framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Samtökin hafa kært framgöngu eftirlitsins til tveggja ráðuneyta.
Tólf erlendum föngum hefur verið vísað úr landi og til stendur að vísa brott tugum í viðbót.
Börn yngri en 15 ára mega ekki nota samfélagsmiðla samkvæmt drögum að nýju frumvarpi barna- og menntamálaráðherra.
Seinni undanúrslitaleikurinn á heimsmeistaramóti karla í fótbolta er í kvöld. Þá kemur í ljós hvort Argentína eða England mætir Spáni í úrslitum á sunnudag.