Árásir ganga enn á víxl milli Írana og Bandaríkjamanna sem ber ekki saman um gang friðarviðræðna. Ekkert skip hefur siglt um Hormússund síðan í gærkvöld og olíuverð hækkar enn.
Einungis einn af hverjum fjórum sem störfuðu við húsbyggingar reyndist vera með iðnmenntun í könnun ASÍ. Formaður Byggiðnar segir reyndu og menntuðu fólki skipt út fyrir ómenntað.
Næsti fundur í kjaradeilu flugmanna og Icelandair verður 10. ágúst. Þeir hittust síðast í byrjun mánaðar.
Tillaga um takmörkun á aðgangi barna að samfélagsmiðlum verður lögð fram í Evrópusambandinu síðar á árinu. Sérfræðingar leggja til að börn yngri en þrettán ára fái aðeins að nota miðlana undir eftirliti foreldra.
Aðeins fimmtungur þeirrar tónlistar sem Íslendingar spila á sænsku streymisveitunni Spotify er innlendur.
Veitan vill ekki gera neitt til að breyta því.
Fólk er sterklega varað við því að stökkva í straumharða Eyvindará á Héraði. Þar er fjöldi ferðamanna í einmunablíðu.
Sólarhrings göngumet féll í Elliðaám í gær þegar 466 laxar fóru í gegnum fiskiteljara. Líklegt er að metið falli aftur í dag.
Barátta KR og Fram um annað sæti Bestu deildar karla í fótbolta heldur áfram. Sjö mörk voru skoruð í hvorum leik liðanna fyrir sig í gærkvöld. FH og KA hleyptu um leið spennu í fallbaráttuna.