Landhelgisgæslan fylgist með ferðum rússnesks herskips sem er á siglingu innan efnahagslögsögunnar, milli Íslands og Grænlands. Þyrlusveit Gæslunnar fór að skipinu í gær.
Engar breytingar verða gerðar á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar þrátt fyrir aukna óvissu í efnahagsmálum. Formaður fjárlaganefndar segir enn stefnt að því að skila hallalausum fjárlögum á næsta ári.
Þingkosningar fara fram í Armeníu í dag. Flokkur forsætisráðherra landsins, sem vill styrkja tengsl við Evrópu, er með mest fylgi samkvæmt skoðanakönnunum, en það veltur á niðurstöðum kosninganna hvort Armenar fjarlægjist hefðbundna bandamenn, eins og Rússa og halli sér meira að Vesturlöndum.
Rúmlega milljón Spánverjar hlustuðu á messu páfans í Madríd í morgun þar sem hann hvatti fólk til að iðka kaþólska trú. Samkvæmt nýrri könnun segjast tæplega sextíu prósent Spánverja vera kaþólikkar, miðað við níutíu prósent fyrir rúmlega fimmtíu árum.
Sjómenn eru heiðraðir og brugðið á leik í sjávarplássum hringinn í kringum landið í dag, það er sjómannadagur og sumstaðar hefur verið dagskrá alla helgina.
Rúmlega hundrað þúsund millilandafarþegar fóru um Akureyrarflugvöll í fyrra og hefur fjölgað um fimmtán þúsund á síðustu tveimur árum.