Kona, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni á Edition-hótelinu, segir málið ekki tengjast erfðadeilu. Verjandi hennar hér á landi vissi ekki af yfirlýsingu þar sem þetta kemur fram.
Forseti Úkraínu býður Rússlandsforseta til friðarviðræðna í opnu bréfi sem hann birti á samfélagsmiðlum. Hann segir Pútín hafa farið í stríð án tilefnis og þannig eigi sagan eftir að dæma það.
Ríkissáttasemjari vonast til að samninganefnd flugmanna leggi fram tillögur eða gagntilboð eftir að hafa kynnt sér tillögur Icelandair. Hann segir flugfélaginu enn hugnast að geta notað erlent vinnuafl.
Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar hafa borist tugir kvartana yfir lyktarmengun frá malbikunarstöð Colas undanfarin fimm ár.
Bæjarstjórnin í Grindavík sakar stjórnvöld um fjandsamlega afstöðu til skjótrar uppbyggingar bæjarins.
Bandaríska þjóðaröryggisstofnunin NSA notar gervigreindarmódelið Claude til að þróa tölvuárásarvopn, samkvæmt Financial Times.
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála telur að Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hafi farið útfyrir valdsvið sitt með útgáfu starfsleyfa. Úrskurðurinn hefur ekki áhrif á starfsemina að mati fulltrúa eftirlitsins.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta getur komist í umspil um sæti á HM 2027 ef vel tekst til í leiknum gegn Úkraínu.