Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tilkynnti í morgun að hún láti af þingmennsku. Áslaug var kosin fyrir Sjálfstæðisflokkinn fyrir tíu árum, en hefur verið í leyfi undanfarið ár.
Í fyrsta sinn eru fleiri konur en karlar í ríkisstjórn Danmerkur. Mette Frederiksen kynnti ráðuneyti sitt í morgun.
Erlendir leiðsögumenn, sem ekki hafa rekstrarleyfi, voru stöðvaðir meira en sjötíu sinnum á Suðurlandi í fyrra. Einum var snúið við á landamærunum á Seyðisfirði.
Fjármálaráðherra segir ráðuneyti hans ekki hafa fundað um kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Fyrrverandi forstjóri Icelandair bendir á að fyrirtækið hafi ekki skilað arði í níu ár.
Þrítugs Íslendings er saknað í Taílandi. Síðast spurðist til hans 23. maí. Aðstandandi segir að það sé eins og jörðin hafi gleypt hann.
Úkraínuher gerði árásir á olíuinnviði í Pétursborg í Rússlandi í morgun. Reykjarmökk lagði yfir borgina á sama tíma og alþjóðleg efnahagsráðstefna hófst.
Líklega er hægt að greina hvort bein Jónasar Hallgrímssonar séu í gröfinni á Þingvöllum, segir prófessor í stofnlíffræði. Það velti þó á því hvernig þau hafa varðveist.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á knattspyrnureglum og þær verða allar sýnilegar á heimsmeistaramótinu sem hefst í næstu viku. Meðal nýjunga eru tímamörk á innköst, markspyrnur og skiptingar auk þess sem myndbandsdómarar fá aukið hlutverk í ákveðnum atvikum.