Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ í fyrrinótt. Fuglum var sleppt og skemmdir unnar. Grunur er um að sami hafi verið að verki og braust inn í svínabú fyrir nokkru.
Rannsóknarnefnd sem kannar aðstæður barna sem vistuð voru á einkaheimilum verður komið á fót. Frumvarp forsætisráðherra hefur verið samþykkt úr ríkisstjórn og verður brátt lagt fyrir þingið.
Hildur Björnsdóttir fær lyklana að skrifstofu borgarstjóra Reykjavíkur í dag og ný borgarstjórn tekur við. Verkefnalisti nýs meirihluta hefur verið birtur á vefnum.
Rússlandsher gerði harðar árásir á Úkraínu í nótt. Yfirvöld segja að herinn hafi drepið átján , og sært hundrað. Utanríkisráðherra Úkraínu segir árásirnar sýna að Rússar eigi engin spil eftir á hendi.
Hagfræðingur hjá HMS segir minni hækkanir á fasteignamati endurspegla kólnun á fasteignamarkaði. Fasteignamat lækkaði að raunvirði milli ára.
Bandaríkjastjórn er opin fyrir því að bandarískum kjarnorkuvopnum verði komið fyrir víðar í Evrópu en nú er. Norðmenn hafa samið við Frakka um kjarnorkuvopnavernd og fleiri hafa lýst yfir áhuga.
Líklegt er að allsherjar- og menntamálanefnd geri breytingar á frumvarpi um brottfararstöð áður en það kemur til lokaumræðu.
Serena Williams gæti enn orðið sigursælasta tenniskona sögunnar. Hún ætlar sér að hefja keppni að nýju í næstu viku eftir fjögurra ára hlé.