Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 1. júní 2026

Leiðtogar í Evrópu fordæma hernað ísraelskra stjórnvalda gegn Líbanon og Frakkar krefjast skyndifundar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Forsætisráðherra Ísraels fyrirskipaði árásir á úthverfi Beirút í morgun.

Jafnlaunavottun hefur verið afnumin í núverandi mynd og Háskólinn á Hólum sameinast Háskóla Íslands; lög um þetta voru samþykkt á Alþingi í morgun.

Litlar breytingar hafa orðið á eldsneytisverði síðustu vikur, þrátt fyrir miklar sveiflur á heimsmarkaði. Framkvæmdastjóri FÍB segir svigrúm til lækkunar.

Eftir fyrri umferð forsetakosninga í Kólumbíu í gær er ljóst hægrimaður sem nýtur stuðnings Bandaríkjaforseta, og vinstrimaður bandamaður sitjandi forseta landsins eigast við í seinni umferð kosninganna.

Óvissa er hjá starfsmönnum heilbrigðiseftirlita sveitarfélaga vegna fyrirhugaðra breytinga á störfum þeirra og kjörum um áramótin. Fækka á eftirlitsstofnunum og sameina ríkisstofnunum.

Rúmlega 450 jarðskjálftar hafa mælst undanfarinn sólarhring á Hellisheiði. Ekkert bendir til gosóróa.

Stjórn útgerðarfélagsins Brims hefur samþykkt kaupa öll hlutabréf í Lýsi fyrir 20 milljarða króna. Það er þriðjungi lægra en kauptilboðið sem gert var í fyrra.

Ríkissáttasemjari segir fátt frétta í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Síðan deilunni var vísað til hans hafa 40 flugferðir verði felldar niður vegna manneklu.

Freyr Alexandersson er hættur sem þjálfari Brann í norsku úrvalsdeild karla í fótbolta eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

Birt

1. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,