Lyfjameðferð gæti verið óþörf sjúklingum með ákveðna tegund af brjóstakrabbameini. Þetta sýnir alþjóðleg rannsókn sem gerð var í sex löndum.
Maður lést í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt. Samkvæmt heimildum fréttastofu sat hann inni fyrir manndráp og er grunur um að hann hafi svipt sig lífi.
Útbreiðsla ebólu í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó er hraðari en nokkru sinni í sambærilegum faraldri. Yfir þúsund hafa smitast frá því tilkynnt var um faraldurinn fyrir rúmum tveimur vikum.
Á áttunda hundrað manns voru handteknir í Frakklandi í gærkvöld og nótt þegar sigri Paris Saint Germain í meistaradeild karla í fótbolta var fagnað. Yfir tvö hundruð slösuðust, þar af einn lögreglumaður.
Borgarfulltrúi Vinstrisins segir tillögu meirihlutans um niðurfellingu fánareglna ala á óskýrleika. Það sé sérstakt að það sé eitt af fyrstu málum á dagskrá nýs meirihluta.
Icelandair hefur aflýst sex flugferðum í dag vegna þess að ekki tókst að manna áhafnir. Enn er langt í land í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna.
Dýraverndarsamband Íslands skorar á stjórnvöld að draga úr innflutningi og sölu á frostlegi sem inniheldur eiturefni, sem er oft notað til að eitra fyrir dýrum.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tJapan í vináttulandsleik í Tókýó í morgun.