Ekki stendur til að breyta lögum, hvað þá stjórnarskrá, á meðan rætt er um aðild við ESB - ef til aðildarviðræðna kemur yfirhöfuð, segir forsætisráðherra sem sat fyrir svörum á opnum fundi utanríkismálanefndar í morgun
Við lifum í brjáluðum heimi, segir Donald Trump sem kveðst ekki hafa verið hræddur, þegar byssumaður reyndi að skjóta forsetann og ráðherra hans um helgina. Heimsókn Englandskonungs til Bandaríkjanna breytist ekki, þrátt fyrir árásina.
Gervigreind er mikið notuð í íslenskum fyrirtækjum, en notkunin virðist vera ómarkviss og innleiðingin er skammt á veg komin að mati Almannaróms - miðstöðvar í máltækni.
Félagasamtökin Rótin hafa kært ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja þeim aðgangs að upplýsingum frá SÁÁ til úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Íslendingur sem lést í fallhlífarslysi í Danmörku var nemandi við Lýðháskóla á Fjóni. Forstöðumaður við skólann segir starfsfólk og nemendur harmi slegna.
Rannsóknarmiðstöð um málefni innflytjenda á vegum Háskólans á Akureyri á að safna og greina gögn til þess að styðja opinbera stefnumótun um innflytjendur.
Íslandsmethafinn í maraþonhlaupi segir sigurvegara í Lundúnarmaraþoninu í gær hafa hlaupið á ómanneskjulegum hraða. Tveir hlupu maraþon á undir tveimur klukkustundum - það hafði enginn gert áður.