Fjármálaráðherra segir sterka varðstöðu um eiginhagsmuni í sjávarútvegi ná alla leið inn í þingsal – því sé hægara sagt en gert að breyta kerfinu þrátt fyrir þingmeirihluta.
Búlgarar ganga að kjörborðinu í dag, í áttunda sinn á fimm árum. Samkvæmt skoðanakönnunum fær bandalag fyrrum forseta landsins flest atkvæði.
Mennta- og barnamálaráðherra segir að Foreldrahús hafi sótt um talsvert hærri fjárveitingar en þurfi til rekstursins. Ekki hafi verið hægt að verða við því. Til stendur að loka húsinu eftir nokkra daga vegna fjárskorts.
Skotárás í höfuðborg Úkraínu í gær er rannsökuð sem hryðjuverk. Árásarmaður skaut fólk á götum úti og tók nokkra í gíslingu í matvörubúð.
Lögregla handtók karlmann á fimmtugsaldri fyrir sölu á læknadópi og fíkniefnum auk vopnalagabrots á bar í austurborginni í gærkvöld. Hann er enn í haldi lögreglu.
Elísabet Rut Rúnarsdóttir sló seint í gærkvöld Íslandsmetið í sleggjukasti þegar hún kastaði 72,89 metra á móti í Bandaríkjunum. Hún er um leið orðin örugg inn á Evrópumótið í sumar.
Að bjóða góðan dag er rótgróin og kurteis kveðja, en gæti það verið áróður á kjörstað í komandi borgarstjórnarkosningum? Við leitum svara við því í fréttatímanum.