Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 17. apríl 2026

Tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanons hófst í morgun og fjöldi fólks sem flúði átökin hefur snúið heim. Herinn í Líbanon sakar Ísraela um brot á vopnahléinu. Bandaríkjaforseti segir samkomulag við Íran í augsýn.

Miðflokkurinn er hástökkvarinn í nýjum þjóðarpúlsi Gallups um fylgi flokka í borgarstjórn, en Framsókn tapar mestu frá kosningum. Sjálfstæðisflokkur og Samfylkingin eru stærstir og bæta við sig fylgi.

Tímabundnar efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar duga ekki gegn verðbólgu, mati aðalhagfræðings Landsbankans. Greiningardeild bankans spáir hækkun stýrivaxta.

Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands er öskureiður yfir því honum var ekki sagt Peter Mandelson hafði ekki staðist öryggisvottun þegar hann var skipaður sendiherra í Bandaríkjunum. Þrýst er á Starmer segja af sér.

Þrjú sveitarfélög krefjast hundraða milljóna frá Vinnumálastofnun vegna tjóns á leiguhúsnæði sem hýsti umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Það myndi breyta öllu jarðgöng til Vestmannaeyja, segir framkvæmdastjóra Eyjaganga. Rannsóknarboranir hefjast um helgina.

Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör semja og flytja þjóðhátíðarlagið í ár. Birgitta ætlar koma fólki á óvart.

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta býr sig undir stórleik gegn Englandi á Laugardalsvelli á morgun.

Birt

17. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,