Fulltrúar Líbanons og Ísraels funda í Washington í dag með utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Líbönsk stjórnvöld vilja tryggja frið milli Ísraels og Hezbollah. Leiðtogi Hezbollah leggst þó gegn viðræðunum.
Fyrrverandi samherjar Guðmundar Inga Kristinssonar í Flokki fólksins undrast brotthvarf hans úr flokknum. Þeir kannast ekki við trúnaðarbrest eða ósætti innan flokksins.
Milljörðum er varið í stríðið gegn fíkniefnum árlega hér á landi en þrátt fyrir það er framboð af þeim verulegt. Afbrotafræðingur telur að endurskoða þurfi fíkniefnalöggjöfina.
Oddvitaumræður RÚV fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar hefja göngu sína í kvöld þegar oddvitar framboðanna sex í Hafnarfirði mætast í sjónvarpi.
Kostnaður við rekstur sendiskrifstofa Íslands á erlendri grundu hefur aukist um hundruð milljóna síðustu þrjú ár. Rekstrarkostnaður sendiskrifstofunnar í Peking hefur hækkað um 100 milljónir frá 2023.
Hvernig á að forgangsraða í öryggis- og varnarmálum á umrótatímum? Þetta er eitt helsta umræðuefnið á árlegri ráðstefnu um alþjóðasamvinnu, sem nú stendur yfir í Norræna húsinu.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta tekur á móti Úkraínu í undankeppni heimsmeistaramótsins í Brasilíu 2027. Liðin munu að líkindum berjast um umspilssæti og því gæti sigur reynst afar dýrmætur.