Leiðtogar fjölmargra Evrópuríkja hafa fagnað sigri Tisza flokksins í þingkosningunum í Ungverjalandi í gærkvöld. Leiðtogi Tísa ætlar að hreinsa til í stjórnkerfi landsins og boðar bætt samskipti við Evrópusambandið.
Bandaríkjaforseti hótar að loka fyrir alla umferð skipa til og frá Íran um Hormússund. Lokunin á að taka gildi eftir rúman einn og hálfan klukkutíma.
Skoskt fyrirtæki krefst ríflega hundrað milljarða króna frá Samherja fyrir breskum dómstólum vegna viðskipta útgerðafélagsins í Namibíu.
Fangaverðir segja ástandið í yfirfullum fangelsum óviðunandi og fangelsismálastjóri tekur undir með þeim.
Forsætisráðherra Danmerkur, hefur boðað leiðtoga Venstre og Íhaldsflokksins á sinn fund. Stjórnarmyndunarviðræður við vinstriflokkana hafa gengið hægt.
Páfi hefur ekki áhuga á að rökræða við Bandaríkjaforseta sem hefur gagnrýnt hann harðlega. Páfi ætlar að halda áfram að flytja boðskap friðar.
Ungir höfuðborgarbúar kjósa síst aðra ferðamáta en einkabílinn. Langur ferðatími er algengasta ástæða þess að fólk velur einkabílinn.
Norður-írinn Rory McIlroy varði titil sinn á Masters-mótinu í golfi í gærkvöld. Aðeins þrír aðrir kylfingar hafa afrekað það í 92 ára sögu mótsins.