Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 5. apríl 2026

Íranar gerðu árásir á olíuvinnslustöðvar í Kúveit og Bahrein í morgun og miklar skemmdir urðu á þeim. Sjö hið minnsta létust í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í morgun.

Tveir vélsleðamenn lentu ofan í Fúlukvísl í Þjófadölum við rætur Langjökuls fyrir hádegi. Þyrla Landhelgisgæslunnar er komin á vettvang til aðstoðar.

Hátt í fjögur hundruð manns sem ekki eru með lögheimili í Grindavík hafa óskað eftir því kjósa í bænum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Rúmlega ellefu hundruð manns verða á kjörskrá.

Hríðarstormur gengur yfir landið á morgun og appelsínugular viðvaranir taka gildi sunnanlands um hádegi. Ekkert ferðaveður verður á sunnanverðu landinu síðdegis.

Gleðin var allsráðandi á Ísafirði um helgina þegar tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fór fram í tuttugasta og annað sinn. Eigandi Hamraborgar, sem hefur opið alla helgina, segir þetta annasömustu daga ársins.

Það eru margir sem nýta sér blíðviðrið í dag til útivistar. Við ætlum á gönguskíði í fréttatímanum.

Tveir leikir eru á dagskrá 32- liða úrslita bikarkeppni karla í fótbolta í dag. Leikur Stjörnunnar og Selfoss verður í beinni útsendingu á RÚV.

Birt

5. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,