Hádegisfréttir

Hádegisfréttir 6. mars 2026

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna Íslands og Evrópusambandsins fer fram 29. ágúst. Ríkisstjórnarflokkarnir kynntu þingsályktunartillögu þess efnis í morgun. Hún verður lögð fyrir þingið í næstu viku.

Meirihluti landsmanna er hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups, eða fimmtíu og sjö prósent. Ríflega þrjátíu prósent eru andvíg.

Háttsettur ísraelskur embættismaður segir árásir Ísraels og Bandaríkjanna á Íran hafa gengið betur en búist var við. Ísraelsher hélt áfram loftárásum á Íran og Líbanon, á sjöunda degi stríðsins. Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna hefur lýst yfir neyðarástandi vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum.

Yfirlæknir á Vogi kveðst ekki vita til þess fólk hafi hætt í viðhaldsmeðferð við ópíóíðafíkn vegna kostnaðar. Komið til móts við skjólstæðinga.

Formaður félags íslenskra heimilislækna segist bjartsýnn á allir landsmenn verði komnir með heimilislækni á næstu tíu árum. Yfir hundrað sérnámslæknar í heimilislækningum stunda nám hér á landi.

Uppselt er á leik Íslands og Evrópumeistara Englands í undankeppni HM kvenna í fótbolta sem spilaður verður í Notthingham á morgun. Búist er við tæplega 30 þúsund áhorfendum.

Birt

6. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Þættir

,