Fimmtán prósent nýrra skjólstæðinga hjá Píeta-samtökunum eru einhverf og koma ítrekað að lokuðum dyrum í geðheilbrigðiskerfinu. Sálfræðingur segir heilbrigðiskerfið hafna þessum hópi.
Árásir Írana og Ísraela á báða bóga héldu áfram í morgun. Íranar réðust líka á Aserbaídsjan - og þar með eru löndin orðin tólf, sem stríðið hefur haft bein áhrif á. Utanríkisráðherra segir koma til greina að senda flugvél eftir Íslendingum í Mið-Austurlöndum.
Landsmenn treysta Landhelgisgæslunni best, í mælingum Gallups. Þjóðkirkjan bætir við sig mestu trausti annað árið í röð.
Það er ekkert grín að sjá í gegnum gervigreindina, segir sérfræðingur hjá Netvís. Um 80% þátttakenda í nýrri könnun gátu ekki greint gervigreindarmyndir frá öðrum.
Ryðja verður heimatilbúnum hindrunum í efnahagslífinu úr vegi, að mati Samtaka iðnaðarins, sem halda iðnþing í dag.
Nýjar gjaldskrár í leikskólum eru farnar að bitna á atvinnuþáttöku kvenna, segir varaformaður Afls starfsgreinafélags. Kjarakönnun hjá félagsmönnum Afls bendir til að yfir helmingur foreldra hafi stytt vistun og að það séu konurnar sem taki að sér að vera meira heima.
Katrín Tinna Jensdóttir og Hafdís Renötudóttir, sem fengu höfuðhögg í leik í gærkvöldi, urðu báðar eftir heima á Íslandi þegar kvennalandsliðið í handbolta hélt út til Svartfjallalands í nótt.