Áfram er mikill þungi bæði í árásum Ísraels og Bandaríkjanna á Íran og hefndarárásum Írana. Útför æðstaklerks Írana, sem átti að vera í dag hefur verið frestað. Eftirmaður hans hefur enn ekki verið kjörinn.
Að minnsta kosti 200 einhverfir á aldrinum 18-30 ára eru í reiðileysi vegna skorts á þjónustu. Foreldrar margra hafa horfið af vinnumarkaði og eru komnir á örorku vegna álags. Nokkrum einhverfum ungmennum var í gær vísað úr endurhæfingu
Íslensk stjórnvöld innleiða ennþá gamlar reglugerðir í gegnum EES-samninginn sem draga úr samkeppnishæfni segir aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, á sama tíma og Evrópa einfaldar regluverk í umhverfis- og loftlagsmálum.
Samtökin 78 vilja að lögregla rannsaki aðferðir kaþólsku kirkjunnar til að bæla samkynhneigð og ætla að fylgja því eftir. Lögfræðingur telur tilefni til rannsóknar.
Árlega eru um sextán prósent ungra kvenna beitt kynferðisofbeldi. Þolendakönnun lögreglu leiðir þetta í ljós.
Talsverður munur er á lesfimi barna eftir sveitarfélögum samkvæmt niðurstöðum lesfimiprófa sem birtar voru í dag. Niðurstöðurnar ná til síðustu fimm ára.
E-valor vill vinna rafeldsneyti á Bakka við Húsavík og er fimmta fyrirtækið sem hefur hug á starfsemi þar og hefur skrifað undir viljayfirlýsngar með sveitarfélaginu.
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta reynir að ná í sín fyrstu stig í undankeppni EM þegar liðið tekur á móti Svartfjallalandi í dag.