Átökin í Miðausturlöndum halda áfram að breiðast út. Ísrael gerði þungar árásir á Líbanon í morgun. 31 er sagður hafa verið drepinn. Íranski byltingarvörðurinn segist hafa gert árás á skrifstofur Benjamíns Netanjahú.
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, fyrrverandi forsætisráðherra og borgarstjóri, lést á heimili sínu í gær, 78 ára að aldri. Hann var um árabil einn áhrifamesti stjórnmálamaður landsins.
Gul og appelsínugul veðurviðvörun er á landinu austanverðu í dag. Færð er þegar tekin að spillast og margir fjallvegir lokaðir.
Bróðir Margrétar Löf, sem var dæmd fyrir að bana föður þeirra í fyrra, segist ekkert hafa vitað um ofbeldið sem hún beitti forelda sína um árabil.
Bandaríkin eru staðráðin í að senda sjúkraskip til Grænlands þrátt fyrir að dönsk og grænlensk stjórnvöld hafa afþakkað heilbrigðisaðstoð. Sérfræðingar telja að skipið myndi skapa fleiri vandamál en það myndi leysa.
Karlalandslið Íslands mætir Litáen öðru sinni í undankeppni heimsmeistaramótsins í körfubolta 2027 síðdegis.