Úrræði sem stjórnvöld boðuðu til að bæta stöðuna á bráðamóttöku Landspítalans fyrir nær tveimur vikum hafa litlu skilað. Rúmlega hundrað bíða enn á spítalanum eftir að komast á hjúkrunarheimili.
Sjö gámar af búnaði og varahlutum fyrir orkuvinnviði frá Landsneti, Veitum og Norðurorku, verða sendir til Úkraínu í vikunni. Forsætisráðherra greindi frá því í gær að Ísland setji átta hundruð milljónir króna í orkutengd verkefni í Úkraínu.
Bandaríkjaforseti stærði sig af viðsnúningi í efnahagsmálum og innflytjendamálum í stefnuræðu sinni í nótt en fór ekki með rétt mál. Til snarpra orðaskipta kom milli hans og þingmanna um innflytjendamál.
Mannréttindastjóri Evrópuráðsins vill að ákvæði um vistun barna í brottvísunarbúðum verði tekið út úr frumvarpi dómsmálaráðherra.
Björgunarssveitir stóðu í ströngu við að aðstoða ökumenn í vetrarfærð á Austurlandi í gærkvöld. Útlit er fyrir að færð spillist suðvestanlands eftir hádegi.
Ástarsvikarar á netinu höfðu sjötíu milljónir króna af Íslendingum í fyrra. Aðstoðaryfirlögregluþjónn fjármunabrotadeildar segir slík brot færast í aukana.
Bodø/Glimt varð í gær fyrsta norska fótboltaliðið til að vinna leik í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu þegar liðið hafði betur gegn Inter á San Siro-vellinum í Mílanó.